Nú erum við Sigurður Ásgeirsson búnir að heimsækja djásnið, hérna eru nokkrar myndir...og já Sunna þú ert bókuð í fyrstu ferð.
Nú hefur hópur flugáhugamanna sett sér það takmark að koma Yak 12 til landsins og bæta í flugvélaflóruna fyrir sumarið. Undirritaður er einn af þessum flugdelluköllum.
Þessi vél er stór og stór skemmtileg, 5 sæta með gott farangursrými. Stuttbrautar eiginleikar eru með besta móti og þarf hún vel innan við 100 metra til að athafna sig. Virðuleg með 12.60 metra vænghaf , stjörnuhreyfil ekki ósvipaður og er í BCX og BCW knýr þetta loftfar áfram, Ivchenko 14RA , 260 hestöfl. Þetta gæti því orðið mjög skemmtilegt flugsumar og allavega 4 Yakar á sveimi um landið.
Flokkur: Bloggar | 2.3.2007 | 15:52 (breytt 22.3.2007 kl. 21:44) | Facebook
Athugasemdir
Af því ég er fyrst til að skrifa athugasemd við þennan pistil, finnst mér ekki nema sanngjarnt að ég fái flugferð í Yakkinum í sumar :-)
Sunna, Aey-Ap
Sunna (IP-tala skráð) 4.3.2007 kl. 15:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.